Hringt í neyðarnúmer
1
Gakktu úr skugga um að kveikt sé á símanum.
2
Athugaðu hvort nægilegur sendistyrkur er fyrir hendi. Einnig kann að vera nauðsynlegt að gera eftirfarandi:
•
Setja inn SIM-kort.
•
Slökktu á takmörkunum símtala sem hefur áður verið kveikt á líkt og útilokunum, föstu númeravali eða lokuðum
notendahópi.
•
Gæta þess að ótengt snið og flugsnið séu ekki virk.
•
Ef skjár og takkar símans eru læstir skaltu opna fyrir þá.
3
Ýttu endurtekið á hætta-takkann þar til heimaskjárinn kemur upp.
4
Sláðu inn opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
5
Ýttu á hringitakkann.
6
Gefa skal upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu
leyfi til þess.
Þegar þú kveikir á símanum í fyrsta skipti er beðið um að þú stofnir Nokia-áskrift. Ýttu á hringitakkann við uppsetningu
áskriftar til að hringja neyðarsímtal.
Mikilvægt: Kveiktu bæði á farsíma- og netsímtölum ef síminn styður netsímtöl. Síminn kann að reyna að koma á
neyðarsímtölum bæði um farsímakerfið og þjónustuveitu netsímtala. Ekki er hægt að tryggja tengingar við hvaða skilyrði
sem er. Aldrei skal treysta eingöngu á þráðlausa síma ef um er að ræða bráðnauðsynleg samskipti, t.d. í bráðatilvikum.