Nokia E6 00 - SIM-kort og rafhlaða sett í

background image

SIM-kort og rafhlaða sett í

Mikilvægt: Þetta tæki er aðeins ætlað til notkunar með venjulegu SIM-korti (sjá

mynd). Ef ósamhæf SIM-kort eru notuð gæti það skaðað kortið eða tækið og gæti

skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu. Fáðu upplýsingar hjá símafyrirtækinu um

notkun SIM-korta með mini-UICC straumloka.

1 Slökktu á símanum.
2 Dragðu krækjuna á bakhliðinni að neðri hluta símans og fjarlægðu bakhliðina.

10

Síminn tekinn í notkun

background image

3 Ef rafhlaðan er í skaltu taka hana úr.

4 Notaðu nöglina til að draga SIM-kortahölduna gætilega út. Ekki er hægt að

fjarlægja hölduna.

5 Gakktu úr skugga um að snertiflötur kortsins snúi niður og settu SIM-kortið inn.

Ýttu höldunni varlega á sinn stað.

6 Gættu að snertum rafhlöðunnar og settu rafhlöðuna í.

Síminn tekinn í notkun

11

background image

7 Beindu efri læsihökunum að raufunum og ýttu bakhliðinni niður þar til hún smellur

á sinn stað.

SIM-kort fjarlægt

1 Slökktu á símanum.
2 Fjarlægðu bakhliðina.
3 Ef rafhlaðan er í skaltu taka hana úr.
4 Notaðu nöglina til að draga SIM-kortahölduna gætilega út. Ekki er hægt að

fjarlægja hölduna. Fjarlægðu SIM-kortið.