Setja upp samnýtingu myndskeiðs
Til að koma á samnýtingu hreyfimynda þarf P2P- og 3G-tengistillingar.
Tenging á milli einstaklinga (P2P) er einnig þekkt undir heitinu SIP-tenging (Session
Initiation Protocol). Velja þarf SIP-sniðstillingar í símanum til að geta notað
samnýtingu hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er
að vista þær í símanum. Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar eða gefið þér upp
nauðsynlegar stillingar.
Setja upp tengingu milli einstaklinga
1 Veldu >
Stillingar
og
Tengingar
>
Stjórnandastillingar
>
SIP-stillingar
og
SIP-snið.
2 Sláðu inn nauðsynlegar SIP-stillingar.
Breyttu stillingum fyrir samnýtingu hreyfimynda
Veldu >
Stillingar
og
Tengingar
>
Samnýting hreyfimynda
.
Nota 3G-tengingu
Nánari upplýsingar má fá hjá þjónustuveitunni.
Bæta SIP-vistfangi við tengilið
1 Veldu >
Tengiliðir
.
2 Veldu tengilið og táknið
3 Veldu táknið >
Samnýta myndskeið
.
Sími
45
4 Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-
tölu í stað vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu notað símanúmer hans, ásamt
landsnúmerinu, til að samnýta hreyfimynd (ef netþjónustuveitan styður það).