Síminn stilltur á sjálfvirka læsingu
Viltu vernda símann fyrir óleyfilegri notkun? Veldu láskóða og stilltu símann á
sjálfvirka læsingu þegar þú ert ekki að nota hann.
1 Veldu >
Stillingar
og
Sími
>
Símastjórnun
>
Öryggisstillingar
>
Sími og SIM-
kort
.
2 Veldu
Öryggisnúmer
og sláðu inn láskóða. Slá verður inn minnst 4 stafi og hægt
er að nota tölur, tákn eða há- og lágstafi.
Haltu láskóðanum leyndum og á öruggum stað fjarri símanum. Ef þú gleymir
láskóðanum og síminn er læstur þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú gætir þurft
að greiða viðbótargjald og persónulegum upplýsingum í símanum kann að verða
eytt. Nánari upplýsingar fást hjá Nokia Care þjónustuveri eða seljanda símans.
3 Veldu
Sjálfvirkur læsingartími síma
og tilgreindu hversu langur tími á að líða
þangað til síminn læsist sjálfkrafa.
Símanum læst handvirkt
Ýttu á rofann á heimaskjánum, veldu
Læsa síma
og sláðu inn láskóðann.
Síminn opnaður
Renndu takkalásnum til, sláðu inn láskóðann og veldu
Í lagi
.
Ef takkalásinn er ekki innan seilingar, ýttu þá á skruntakkann og veldu
Úr lás
.